Þær eru algjör sprengja þessar múffur sem við kynnum hér til leiks. Uppskriftin er einföld, hráefnið er eitthvað sem allir ættu að eiga í skúffunum heima og þær bragðast vel. Dumle-karamellurnar eru undirstaðan í þessari uppskrift sem getur ekki klikkað.
Ómótstæðilegar múffur með Dumle
- 250 g hveiti
- 25 g kakó
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. vanillusykur
- Salt á hnífsoddi
- 50 g dökkt súkkulaði
- 150 g bráðið smjör
- 250 g sykur
- 2 egg
- 12 Dumle
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C á undir- og yfirhita.
- Taktu fram 2 skálar. Settu hveiti í aðra ásamt kakó, lyftidufti, natron, vanillusykri, salti og hökkuðu súkkulaði. Í hina skálina skaltu hræra saman bráðnu smjöri við sykur og egg.
- Blandið smjörblöndunni saman við þurrblönduna þar til deigið verður slétt.
- Setjið góða matskeið af deigi í 12 muffinsform og leggið einn Dumle-mola í hvert form. Setjið því næst aftur góða matskeið af deigi yfir Dumle-molann. Deigið á að duga í 12 form, en það fer að sjálfsögðu eftir stærðinni á formunum.
- Setjið í ofn í 20 mínútur. Fylgist samt með hvort kökurnar séu búnar að fá nóg eða þurfa meiri tíma.
- Takið úr ofni og leyfið að standa í 15 mínútur áður en bornar fram.