Páskakakan í ár er með kókos og sítrónukremi, skreytt með ristuðum kókosflögum. Fullkomin í páskabrönsinn eða sem eftirréttur. Við mælum með því að gera þessa deginum áður en hún er borin fram.
Páskakaka með kókos og sítrónukremi
Kókosbotnar:
- 300 g hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 100 g kókosmjöl
- 4 stór egg
- ½ tsk. salt
- 225 g mjúkt smjör
- 375 g sykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 2½ dl kókosmjólk
Sítrónukrem:
- 4 sítrónur
- 125 g smjör
- 4 egg
- 150 g sykur
Glassúr:
- 200 g rjómaostur
- 50 g mjúkt smjör
- 150 g flórsykur
- ½ dl kókosmjólk
- 1 tsk. vanillusykur
Skraut:
- 75 g ristaðar kókosflögur
- Lítil marglit páskaegg
Aðferð:
Kókosbotnar:
- Látið öll hráefnin sem eiga að fara í botnana vera við stofuhita áður en þú blandar þeim saman.
- Sigtið hveiti og lyftiduft saman og bætið kókosmjöli út í.
- Skiljið rauðurnar frá hvítunni og pískið hvíturnar þar til mjúkar. Bætið við salti og haldið áfram að píska þar til alveg stífar.
- Pískið saman smjör, sykur og vanillu í 2-3 mínútur, bætið þá rauðunum út í einni í einu.
- Hrærið hveitiblöndunni og kókosmjólkinni varlega út í deigið til skiptis. Blandið svo stífu eggjahvítunum út í í 2-3 skömmtum.
- Setjið deigið í tvö 22 cm smurð smelluform.
- Bakið við 170°C á blæstri í 45-50 mínútur. Snúið kökunum og skiptið jafnvel um pláss á þeim eftir 30 mínútur í ofni. Athugið eftir uppgefinn bökunartíma með tannstöngli hvort botnarnir séu bakaðir í gegn og látið kólna á rist.
Sítrónukrem:
- Þvoið sítrónurnar og rífið svo ysta lagið af berkinum með rifjárni og pressið safann. Skerið smjörið í litla teninga.
- Pískið egg, sykur, sítrónubörk og safa saman í skál yfir vatnsbaði. Pískið þar til kremið verður þykkt og sirka 68°, um 8-10 mínútur.
- Takið skálina af vatnsbaðinu og pískið smjörteningana út í, einn í einu, þar til kremið verður slétt. Kælið og setjið inn í ísskáp.
Samsetning:
- Takið botnana úr formunum og skerið til helminga. Smyrjið sítrónukremi á milli botnanna og geymið í ísskáp til næsta dags. Gott er að setja botnana aftur í hreint smelluform til að kakan haldist stíf inni í kæli.
Glassúr:
- Pískið rjómaost og smjör saman og bætið flórsykri, kókosmjólk og vanillusykri út í. Pískið glassúrinn „léttan“ og setjið í kæli í 30 mínútur.
Skraut:
- Smyrjið glassúrnum yfir alla kökuna og á hliðarnar. Setjið kókosflögur þétt á allar hliðar kökunnar og skreytið með litlum páskaeggjum.