Sveppameðlæti er svo vanmetið – en sveppir eru í alla staði stórkostlegir og passa svo vel með nánast öllum mat. Hér er besta útgáfan af grilluðum sveppum sem hafa legið í balsamikbaði.
Besta útgáfan af grilluðum balsamiksveppum
- ¼ bolli balsamikedik
- 2 msk. soja sósa
- 2 hvítlauksrif, marin
- Svartur pipar
- 450 g sveppir, skornir í þykkar sneiðar
- Fersk steinselja, smátt skorin
Aðferð:
- Pískið saman í stóra skál balsamik, sojasósu, hvítlauk og pipar. Setjið skorna sveppina út í og látið marinerast í 20 mínútur.
- Hitið grillið á meðalhita. Setjið sveppina upp á prjóna og grillið í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
- Stráið seinselju yfir og berið fram.