Kjúklingur er örugglega besta hráefni sem hugsast getur, því það má matreiða kjúkling á ótal vegu – eða svo gott sem. Hér er ein skotheld og meinholl útgáfa af kjúklingaborgara sem þú getur ekki látið fram hjá þér fara.
mbl.is/Chelseasmessyapron.com
Öðruvísi útfærsla af kjúklingaborgara
- 3 bollar kjúklingur, skorinn í bita
- ¾ bolli sellerí
- 1 bolli rauð vínber
- ½ bolli möndluflögur
- ½ bolli þurrkuð trönuber
- Ranch dressing
- salt og pipar
- 1 msk. valmúafræ
- hamborgarabrauð
- salat
Aðferð:
- Eldið kjúklinginn og skerið í litla bita, setjið í skál.
- Skerið sellerí smátt og skerið vínberin til helminga. Setjið út í skálina með kjúklingnum.
- Bætið því næst möndluflögum og trönuberjum út í. Ristið jafnvel möndluflögurnar til að fá auka bragð.
- Hellið ranch dressingu út í skálina eftir þörfum og saltið og piprið. Dreifið valmúafræjum yfir ef vill.
- Blandið vel saman.
- Leggið salatblöð á hamborgarabrauðið og smyrjið góðu lagi af kjúklingablöndunni þar ofan á.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...
- - -
mbl.is/Chelseasmessyapron.com
mbl.is/Chelseasmessyapron.com