Réttir sem þessi eru algjört augnayndi auk þess sem þeir bragðast eins og sælgæti. Hér er öllu raðað saman í fallega skál eins og nýtur mikilla vinsælda þessi dægrin. Við kynnum hér einstaklega góða skál sem inniheldur marineraðan kjúkling með kókoshrísgrjónum, ásamt litríku grænmeti.
Kjúklingaskál með kókos-hrísgrjónum
- 700 g kjúklingabringur
- 3 msk. sojasósa
- 2 msk. púðursykur
- 2 msk. sesamolía
- 1 msk. chili hvítlaukssósa
- 2 hvítlauksrif, marin
- 1 tsk. rifinn engifer
Kókos-hrísgrjón:
- 1½ bolli jasmín-hrísgrjón
- 1½ bolli kókosmjólk
- ½ bolli kókosvatn
- ¼ tsk. salt
- 1½ msk. kókosolía
Fyrir skálina:
- 4 vorlaukar, fínt skornir
- 3 stórar gulrætur, skornar í strimla
- 2 bollar rauðkál, skorið
- 1-2 avocado, skorið í þunnar sneiðar
- 2 msk. ristuð sesamfræ
- ¼ bolli steinselja
- 1 lime
Aðferð:
- Setjið kjúklinginn í poka. Pískið saman í skál sojasósu, sykri, sesamolíu, hvítlaukssósu, hvítlauk og engifer. Hellið blöndunni yfir kjúklinginn. Gott er að gera þetta í það minnsta hálftíma áður en kjúklingurinn er eldaður eða deginum áður.
- Kókoshrísgrjón: Hitið pönnu á meðalhita og setjið hrísgrjón út á pönnuna ásamt kókosmjólk, kókosvatni og salti. Hrærið í og látið suðuna koma upp. Lækkið þá í hitanum og látið malla í 30 mínútur þar til vökvinn hefur gufað upp. Hrærið aðeins í hrísgrjónunum með gaffli og bætið kókosolíunni út í.
- Grillið annaðhvort kjúklinginn eða setjið í ofn á 220°C í 30 mínútur (athugið samt hvort hann sé tilbúinn eftir þann tíma). Leyfið kjúklingnum að hvíla í 10 mínútur áður en þú skerð hann niður.
- Setjið kókoshrísgrjón á botninn á skál, því næst kemur avocado, rauðkál, gulrætur, vorlaukur og smá steinselja.
- Toppið með kjúklingnum ásamt nokkrum avocado-sneiðum. Stráið ristuðum sesamfræjum yfir og kreistið lime yfir allt saman.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...
- - -