Ef við eigum að raða einhverju ofan í okkur þá eru það góðir og næringarríkir þeytingar. Þessi er fullur af góðum berjum og ávöxtum ásamt höfrum til fyllingar – fullkominn fyrir berjaunnendur. Hinn fullkomni on-the-go-morgunverður er hér.
Hinn fullkomni on-the-go-morgunverður
- ½ bolli jarðarber skorin í sneiðar
- ½ bolli hindber
- ½ bolli bláber
- 1 banani
- 1 bolli grísk jógúrt
- 2 msk. haframjöl
- 1-2 msk. agave-síróp
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í blandara ásamt 1 bolla af ísmolum og blandið saman þar til blandan verður mjúk.
- Berið strax fram og skreytið jafnvel með berjum á spjóti.