Þessir tómatar munu vekja upp mikla gleði er þeir lenda á borðinu. Hér er uppskrift að bökuðum tómötum með haug af osti sem passa nánast með öllum mat.
Bakaðir tómatar með haug af osti
- 4 stórir tómatar
- 1 bolli mozzarella
- 1 bolli parmesan
- ½ bolli fersk basilika, skorin
- Ólífuolía
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C.
- Skerið tómatana í þykkar sneiðar og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Leggið parmesan ofan á hverja sneið og því næst mozzarella.
- Stráið basiliku yfir og dreypið ólífuolíu yfir allt saman.
- Bakið í 8-10 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað. Stillið þá á grill og bakið áfram í 2-3 mínútur.
- Berið strax fram.