Rjómakennd ídýfa sem allir munu garga yfir er þeir smakka! Tekur innan við korter að reiða fram og geymist í allt að tvo daga inn í ísskáp – svo þessa má vel útfæra deginum áður til að spara tíma.
Gríska saumaklúbbsídýfan
- Fetakubbur
- Sýrður rjómi
- 1 bolli grísk jógúrt
- 1 msk. nýkreistur sítrónusafi
- 2 tsk. rifinn sítrónubörkur
- 1 hvítlauksrif, marið
- ¼ bolli pepperoncini pepper
- 2 msk. ferskt dill, saxað
- 2 msk. fersk steinselja, söxuð
- 1 smá-gúrka, skorin í sneiðar
- 1 róma tómatur, skorinn í litla bita
Aðferð:
- Notið spaðann (paddle) á hrærivélinni og blandið saman fetakubbi, sýrðum rjóma, grískri jógúrt, sítrónusafa, sítrónuberki og hvítlauk á medium hraða, þar til blandan verður létt í sér – sirka 2 mínútur.
- Bætið við pepperoncini, dilli og steinselju – allt smátt saxað. Breyðið yfir og setjið í kæli þar til ídýfan er borin fram. Geymist í allt að 2 daga í ísskáp.
- Berið fram og skreytið með gúrku og tómat ef vill.