Það jafnast ekkert á við grillmat, og á sætum sumardögum er ekki verra að geta gripið í einfalda uppskrift sem allir í fjölskyldunni munu elska. Hér bjóðum við upp á grillaða kjúklingavængi sem eru hreint út sagt frábærir og bornir fram með kaldri sósu.
Girnilegir og grillaðir kjúklingavængir
- Rifinn börkur af 1 sítrónu
- 2 tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. papríkuduft
- 1 tsk. hvítlaukssalt
- 1 tsk. laukduft
- 1 tsk. þurrkað timían
- ¼ tsk. cayenne pipar
- 1 kg kjúklingavængir
- Ólífuolía
Sósa:
- ½ bolli majónes
- Safi úr 1 sítrónu
- 1 msk. dijon sinnep
- 2 tsk. piparrót
- 2 tsk. graslaukur, smátt saxaður
- 1 tsk.hot sósa
Aðferð:
- Blandið saman í skál, rifnum sítrónuberki, salti, papríkukryddi, hvítlaukssalti, laukdufti, timían og cayenne pipar. Þurrkið af kjúklingavængjunum og veltið upp úr kryddblöndunni.
- Hitið grillið eða grillpönnu á meðal hita. Penslið grillið með ólífuolíu og leggið vængina á grillið. Steikið í 15-20 mínútur.
- Sósa: Blandið öllum hráefnunum saman í skál og berið fram með nýgrilluðum vængjum.