Við höfum eflaust borðað óteljandi brauðsneiðar með smjöri um ævina – en smjör er ekki bara smjör. Þið sem sækist eftir tilbreytingu í lífinu og eruð opin fyrir því að smakka nýtt smjör: þetta hunangssmjör er að fara að gera góða hluti.
Smjörið geymist í allt að mánuð í ísskáp eða sex mánuði í frysti. Afar einfalda og fljótlega uppskrift að mjúku ósöltuðu hunangssmjöri má finna hér fyrir neðan.
Dúnmjúkt hunangssmjör
- 460 g ósaltað smjör við stofuhita
- ½ bolli hunang
- ½ bolli 100% hlynsíróp
- ¼ tsk. kosher-salt
- ½ tsk. kanill (má sleppa)
Aðferð:
- Skerið smjörið í litla bita, setjið í skál og þeytið á lágri stillingu.
- Stillið yfir á meðalhraða á þeytaranum og hellið hunangi og sírópi rólega út í.
- Bætið við salti og aukið hraðann á þeytaranum. Þeytið þar til smjörið er létt og loftkennt í u.þ.b. 5 mínútur.
- Geymið í ísskáp í lofttæmdu boxi í allt að einn mánuð.
mbl.is/Thecookierookie.com