Þegar þú getur boðið upp á fiskibollur með góðu brauði og heimalöguðu remúlaði, þá erum við farin að tala um lúxusmat. Hér er ein dásamleg uppskrift að góðum fiskimat.
Ljúffengar fiskibollur með heimalöguðu remúlaði (fyrir 4)
- 600 g þorskflök
- 1 egg
- 3 msk. hveiti
- ½ dl mjólk
- 1 tsk. salt og pipar
- Smjör til steikingar
Remúlaði:
- 10 g laukur
- 10 g gulrót
- 10 g púrrulaukur
- 10 g ferskt rauðkál
- 1 msk. kapers
- 10 g sultuð gúrka
- 1 dl majónes
- ½ dl sýrður rjómi 18%
- 1 msk. sítrónusafi
- 1 tsk. dijónsinnep
- 1 tsk. túrmerik
- 1 tsk. sykur
- Salt og pipar
Radísusalat:
- 1 búnt af radísum
- 125 g blandað salat
- 2 msk. ólífuolía
- ½ sítróna
- Salt og pipar
Aðferð:
- Hakkið þorskflökin fínt í matvinnsluvél, en ekki of lengi. Hrærið eggi, hveiti, salti og pipar út í og setjið blönduna í kæli.
- Remúlaði: Saxið lauk, gulrót, púrrulauk, rauðkál, kapers og túrmerik mjög smátt. Hrærið öllu saman við restina af hráefnunum og smakkið til.
- Radísusalat: Hreinsið radísurnar og skerið í mjög þunnar skífur. Skolið salatið. Blandið radísum og salati saman við ólífuolíu, sítrónusafa, salt og pipar.
- Mótið bollur úr fiskiblöndunni og steikið á pönnu upp úr smjöri og leyfið þeim að ná góðum lit áður en þú snýrð þeim við.
- Ristið brauðið og berið fram með fiskibollunum, remúlaði og salati.