Sumarið er svo sannarlega tíminn til að leyfa sér gúmmelaði og gotterí. Þessi marengsdraumur er fullkominn á kaffiborðið í sólarglampanum sem er að leika við okkur þessa dagana.
Marengsdraumur með jarðarberjum
- 4 eggjahvítur
- 2 dl sykur
- 3 dl Rice Krispies
- 100 g hvítt súkkulaði
- 5 dl rjómi
- 2 l jarðarber
Aðferð:
- Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykri við smátt og smátt á meðan þú pískar.
- Veltið Rice Krispies í marengsinn.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og teiknið hringi sirka 20 cm á bökunarpappírínn. Hellið marengsinum jafnt í alla hringina.
- Setjið inn í 150°C heitan ofn og lækkið þegar marengsinn fer inn niður í 125°C. Bakið í ofni í 1 tíma og 15 mínútur.
- Slökkvið á ofninum og látið marengsbotnana kólna í ofninum – ekki opna ofninn á meðan hann kólnar.
- Bræðið súkkulaðið og hellið yfir botnana og látið það storkna.
- Þeytið rjómann og leggið marengsbotnana ofan á hvor annan með rjóma og jarðarberjum á milli.
- Skreytið með jarðarberjum.