Innihaldslýsingin ein og sér er svo girnileg að við þurfum næstum ekki neitt meira. Þetta safaríka brauð er það besta sem þú getur boðið upp á í helgarbrönsinum. Hér er notast við 4 lítil bökunarform en ef þú átt ekki slík, þá má vel nota eitt stórt en þá breytist bökunartíminn í 50 mínútur.
Bananabrauð með trönuberjum, möndlum og kókos
- 125 g smjör
- 175 g sykur
- 2 egg
- 3 þroskaðir bananar
- 100 g sólþurrkuð trönuber
- 150 g hveiti
- 150 g kókosmjöl
- 2 tsk. kanill
- 2 tsk. lyftiduft
- 100 g möndlur
- Kókosflögur til skreytingar
Aðferð:
- Hitið ofninn á 175°.
- Pískið smjör og sykur saman. Pískið eggin út í eitt í einu.
- Maukið bananana og blandið þeim út í deigið og bætið trönuberjunum út í.
- Blandið hveiti, kókosmjöli, kanil og lyftidufti í aðra skál. Hakkið möndlurnar gróflega og blandið þeim út í hveitiblönduna. Blandið hveiti blöndunni út í deigið.
- Smyrjið 4 lítil bökunarform (eða 1 stórt bökunarform) hellið deiginu í. Stráið kókosflögum yfir og bakið í ofni í 25-30 mínútur (bakið í 50 mínútur ef deigið fer í stórt form). Stingið í með prjóni til að athuga hvort brauðið sé tilbúið.
- Leyfið aðeins að kólna áður en borið er fram.