Þið sem leiðið hugann til hið rómaða umhverfis á Ítalíu, ættuð að staldra aðeins við. Ítalskur matur er með þeim betri og þessi réttur flytur bragðlaukana alla leið til Toscana - og við erum alls ekki að kvarta. Hér er uppskrift að safaríkum kjúkling með rjómalagaðri sósu og pasta.
Kjúklingur á ítalska vísu
- 4 kjúklingabringur frá Ali
- 3 msk ólífuolía
- 1 tsk. oregano
- 1 tsk. basilikum
- 1 tsk. rósmarín
- 1 tsk. timían
- Salt og pipar
- 3 stór hvítlauksrif
- 2 dl hvítvín
- 2½ dl rjómi
- 20 g sólþurrkaðir tómatar
- 500 g spaghetti
- Handfylli fersk íslensk basilika
Aðferð:
- Hitið olíu á stórri pönnu. Setjið oregano, basiliku, rósmarín, timían, salt og pipar á pönnuna og veltið upp úr olíunni áður en þú leggur kjúklinginn á pönnuna.
- Brúnið bringurnar í sirka 4 mínútur á hvorri hlið. Pressið hvítlauk og setjið út á pönnuna. Hellið hvítvíni og rjóma út á þegar bringurnar eru orðnar fallega gylltar á lit.
- Saxið sólþurrkuðu tómatana gróflega og blandið þeim út í sósuna. Látið malla í 15 mínútur þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum og berið fram með kjúklingnum og ferskri basilikum.