Eru ekki allir enn þá að japla á blómkáli? Hér er ein skotheld uppskrift að blómkálspoppi sem er upplagt að gera um helgina – sérstaklega fyrir þá sem vilja hollari útgáfu af „sælgæti“.
Blómkáls-poppkorn
- Blómkálshaus
- 3 msk. ólífuolía
- ¼ bolli parmesan-ostur
- 1 tsk. hvítlaukskrydd
- ½ tsk. turmerik
- ½ tsk. salt
Aðferð:
- Skerið blómkálið í litla bita.
- Blandið saman ólífuolíu, parmesan-osti, hvítlaukskryddi, túrmerik og salti og veltið blómkálinu upp úr blöndunni.
- Leggið á bökunarpappír á bökunarplötu og ristið í ofni við 250°C í 30 mínútur eða þar til það hefur tekið lit.
- Berið strax fram.