Við nældum í þessa uppskrift hjá Santa Maria sem býður upp á geggjað tortilla með reyktum lax og marineruðu grænmeti. Fullkominn kvöldmatur þegar tíminn er naumur.
Geggjað laxatortilla með marineruðu grænmeti (fyrir 4)
- 2 fennikur
- 1 agúrka
- nokkrar radísur
- 1 lime
- salt
- 2 dl sýrður rjómi
- 1 bréf Old El Paso taco-krydd
- 70 g spínat
- 1 tortilla pakki
- 200 g reyktur lax
Aðferð:
- Skerið fenniku og gúrku í þunnar ræmur með mandolínjárni.
- Skerið radísur í þunnar skífur.
- Blandið fenniku, gúrku og radísum saman með limesafa og salti, og látið standa í sirka 5 mínútur.
- Búið til dressingu úr sýrðum rjóma og dip mix.
- Hitið tortillurnar.
- Smyrjið dressingu á pönnukökurnar, setjið spínat og laxaskífu á hverja og eina köku.
- Toppið með marineruðu grænmeti og berið fram.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl