Salatið sem kemur öllum á óvart

Alveg ólýsanlega bragðgott salat.
Alveg ólýsanlega bragðgott salat. mbl.is/Howsweeteats.com

Þetta stór­kost­lega sal­at mun koma öll­um á óvart sem smakka. Það er kallað „Bloo­dy Mary tóm­ata­sal­at“ þar sem það hef­ur öll bragðefni sem finn­ast í þeim frá­bæra drykk fyr­ir utan áfengið.

Salatið sem kemur öllum á óvart

Vista Prenta

Sal­atið sem kem­ur öll­um á óvart

Chedd­ar snakk:

  • 170 g hvít­ur chedd­ar, rif­inn fínt niður

Tóm­ata­sal­at:

  • 2 tóm­at­ar, skorn­ir í bita
  • 4 plóm­u­tóm­at­ar, skorn­ir til helm­inga
  • 1 bolli cherry tóm­at­ar, skorn­ir til helm­inga
  • ½ bolli græn­ar ólíf­ur, skorn­ar til helm­inga
  • 1/​3 bolli sell­e­rí, saxað 

Dress­ing:

  • 4 tsk. sherrý edik
  • 1 skallott­lauk­ur, smátt skor­inn
  • 1 hvít­lauksrif, merjað
  • 1 msk. til­bú­in pip­ar­rót
  • 2 tsk. hun­ang
  • 1 tsk. Worcesters­hire sósa
  • 1 tsk. hot sósa
  • ½ tsk. dijon sinn­ep
  • ½ tsk. sell­e­rí fræ
  • 1/​3 bolli ólífu­olía

Aðferð:

Chedd­ar snakk:

  1. Hitið ofn­inn á 200°C. Setjið bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  2. Rífið chedd­ar ost­inn eins fínt niður og mögu­legt er. Setjið 1 msk. af rifn­um chedd­ar á bök­un­ar­plöt­una­og haldið áfram með rest­ina af chedd­ar ost­in­um – að búa til litla klatta með sirka 2 cm milli­bili.
  3. Bakið stökkt í 5-6 mín­út­ur, þar til gyllt á lit. Látið kólna. Notið spaða til að ná snakk­inu af bök­un­ar­papp­írn­um.

Tóm­ata­sal­at:

  1. Setjið niður­skornu tóm­at­ana í skál og saltið og piprið. Hristið vel sam­an og bætið ólíf­un­um út í.
  2. Dreypið smá­veg­is af dress­ing­unni yfir og blandið sam­an. Smakkið til með meiri dress­ingu eft­ir þörf­um.
  3. Toppið með sell­e­rí lauf­um og bætið chedd­ar snakk­inu út í eða berið fram með sal­at­inu.
  4. Sal­atið geym­ist auðveld­lega í kæli fram að næsta dag, fyr­ir utan snakkið.

Dress­ing:

  1. Pískið sam­an í skál, ed­iki, skallot­lauk, hvít­lauk, pip­ar­rót, Worchesters­hire, hun­angi, hot sósu, sinn­epi og sell­e­rí fræj­um. Hellið ólífu­olí­unni út í og hrærið stöðugt í á meðan.
  2. Gott er að leyfa dress­ing­unni að taka sig í 15 mín­út­ur áður en hún fer út á sal­atið.
mbl.is/​Howsweeteats.com
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert
Loka