Ein aðalástæðan fyrir ást okkar á góðum bröns eru hin fullkomnu hleyptu egg sem fólk raðar fyrst á diskinn sinn. Sumum finnst umstangið í kringum vinnuna við eggin vera heil algebra að fara í gegnum heima fyrir, sem það er þó ekki, því allir geta gert egg benedict – líka þú.
Hér er uppskrift að dýrindis morgunverði sem þú ættir að prófa við fyrsta tækifæri.
Allir geta gert egg benedict
- 1 msk. edik (má líka nota sítrónusafa)
- 4 stór egg
- 4 góðar brauðsneiðar eða croissant
- 4 sneiðar af góðri skinku
- Spínat eða aspas
Sósa:
- 4 eggjarauður
- 250 g kalt smjör, skorið í bita
- Safi úr ¼ sítrónu
Aðferð:
- Setjið vatn í pott (þannig að það fylli helminginn) og stillið helluna á meðal hita. Þegar vatnið byrjar að sjóða, lækkið þá undir og bætið ediki út í vatnið.
- Brjótið eitt egg í litla skál og byrjið að búa til hvirfil í vatninu í pottinum með sleif. Hellið egginu út í miðjuna á hvirflinum og leyfið vatninu að snúa því í hringi. Sirka 2-3 mínútur fyrir linsoðið egg og 4-5 mínútur fyrir miðlungs- eða harðsoðið egg.
- Náið egginu upp með sleif eða öðru sem leyfir vatninu að leka af. Og endurtaktu með hin eggin.
- Ristaðu brauðið, pönnukökurnar eða það sem þú ætlar að bera fram.
- Legðu skinkuna á brauðið og spínatið. Toppið með eggi og sósu.
- Berið fram með aspas eða grænum baunum ef vill.
Sósa:
- Setjið eggjarauðurnar í pott ásamt smjöri og 2 msk. af vatni. Kveikið undir hitanum og byrjið að píska. Smjörið mun bráðna þegar sósan byrjar að hitna. Passið bara að það byrji ekki að sjóða og því þarf að standa yfir sósunni á meðan þú hrærir í.
- Þegar smjörið hefur bráðnað má lækka aðeins undir hitanum og halda áfram að píska þar til sósan hefur þykknað.
- Bætið þá við sítrónusafa og saltið og piprið eftir smekk.
Hér er notast við snilldargræju til að ná egginu upp úr pottinum.
mbl.is/Yuppiechef.com