Þessi kjúklingaspjót eru alveg geggjuð og veisla fyrir bragðlaukana. Í raun er sósan sem fylgir með enn betri og í raun myndi það ekki skipta máli hvort ykkur þætti kjúklingurinn góður (sem hann er) eða ekki þar sem sósan er algjör himnasending.
Kjúklingaspjót með hnetusósu
- ¼ bolli kókosmjólk
- 2 msk. Kikkoman sojasósa
- 2,5 tsk. karrý
- 1,5 tsk. turmerik
- 3 hvítlauksrif, marin
- 1 msk. nýrifið engifer
- 1 msk. púðursykur
- 1 msk. fiskisósa
- 1 kg úrbeinuð kjúklingalæri frá Ali, skorin í 3 sm bita
- 1 msk. canola olía
- sjávarsalt og pipar
Hnetusósa:
- 3 msk. hnetusmjör
- 1 msk. sojasósa
- 1 msk. lime safi
- 2 tsk. púðursykur
- 2 tsk. chili hvítlauks sósa, eða meira eftir smekk
- 1 tsk. nýrifið engifer
Hnetusósa:
- Pískið saman hnetusmjöri, sojasósu, lime safa, púðursykri, chili hvítlaukssósu og engifer. Bætið við 2-3 msk af vatni eða þar til sósan er orðin eins og þú vilt hafa hana.
Aðferð:
- Í stórri skál, blandið saman kókosmjólk, sojasósu, karrý, turmerik, hvítlauk, engifer, púðursykri og fiskisósu. Setjið kjúklinginn í skálina og veltið upp úr marineringunni og látið standa í 2 tíma eða yfir nótt. Það má gjarnan velta kjúklingnum upp úr marineringunni annað slagið.
- Látið marineringuna leka af kjúklingnum.
- Hitið grill á meðal hita og þræðið kjúklinginn upp á pinna. Penslið með canola olíu og saltið og piprið.