Við heilsum þessari dásamlegu uppskrift sem er hreint út sagt ómótstæðileg. Bakaður lax með fetamulningi og fersku brómberjasalati – þar sem stökkar hneturnar eru frábærar á móti mjúkum berjunum.
Bakaður lax með fetamulningi og dásemdar salati
- 650 g lax
- ½ púrrlaukur
- Steinselja
- 100 g fetakubbur
- 1 msk. ólífuolía
- 1 msk. sítrónusafi
- salt og pipar
Brómberjasalat:
- 75 g spínat
- ferskt basil
- 1 rauðlaukur
- 125 g brómber
- 30 g ristaðir heslihnetukjarnar
- 50 g fetakubbur
- 4 msk. ólífuolía
- 2 msk. balsamikedik
- 1 msk. hunang
- salt og pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn 200°C. Klæðið eldfast mót með álpappír og leggið laxinn þar ofan á.
- Saxið púrlauk og steinselju. Stappið fetakubbinn og blandið saman við ólífuolíu, sítrónusafa og kryddjurtirnar – saltið og piprið eftir smekk.
- Dreifið fetablöndunni yfir laxinn og bakið í ofni í 20 mínútur.
- Brómberjasalat: Skerið rauðlaukinn í þunnar skífur. Hakkið hneturnar gróflega. Pískið olíu, edik og hunang saman í skál og kryddið með salti og pipar.
- Blandið spínati, basilikum og rauðlauk saman í skál og veltið upp úr dressingunni.
- Setjið salatið í skál og toppið með brómberjum, hnetum og muldum fetakubbi.
- Berið fram með góðu brauði.