Hvernig væri að gleðja krakkana og skella nokkrum bönunum á grillið í góðviðrinu. Hér er uppskrift að grilluðum bönunum sem fylltir eru með sukkulaði, kremi og ferskum berjum. Svo einfalt en samt svo gott.
Grillað bananasplitt með súkkulaði (fyrir 4)
Krem:
- 2 tsk. vanillsykur
- 1 msk. hunang
- 2 dl skyr
Bananar:
- 4 þroskaðir bananar
- 80 g dökkt súkkulaði
- Ristaðar heslihnetur
- Fersk ber
Aðferð:
- Krem: Hrærið vanillusykur, hunang og skyr saman.
- Bananar: Grillaðu bananana á heitu grilli, sirka 8-15 mínútur (fer eftir því hvað grillið er heitt). Leyfðu þeim að verða alveg svartir og mjúkir.
- Hakkið súkkulaðið gróflega.
- Skerið í mjúka bananana og fyllið þá með súkkulaði, kremi, hnetum og ferskum berjum.
- Berið strax fram.