Við fáum ekki nóg af samlokum sem þessum. Henta við öll tilefni þegar hungrið lætur í sér heyra og við þurfum að bregðast við í hvelli. Hér er ein girnileg með kjúklingasalati og pestó og síðan bætir þú við þeim hráefnum sem þú kýst á þína samloku - osti, tómötum, salati, avocadó eða það sem hugurinn girnist.
Bragðgóð kjúklingaloka með pestó
- 3 bollar tilbúinn kjúklingur, skorinn í litla bita
- 1 krukka grillaðar papríkur
- ½ bolli grænt pestó
- 1 bolli gott majónes
- ½ bolli möndluflögur
- Gott brauð
- Annað sem þú vilt á samlokuna: t.d. ostur, tómatar, salat, avocadó eða jafnvel söxuð steinselja
Aðferð:
- Skerið papríkuna smátt og veltið upp úr kjúklingnum, pestóinu, majónesi og möndlum.
- Saltið og piprið eftir smekk. Kryddið jafnvel með steinselju.
- Smyrjið fyllingunni á brauðið og bætið því grænmeti eða öðru meðlæti sem þú kýst á samlokuna.
mbl.is/Chelseasmessyapron.com