Hvernig væri að kveikja undir ofninum sem við geymum út í garði, eða grillinu okkar - og skella þunnbotna pizzum á teinana, alveg eins og Ítalarnir gera. Hér er uppskrift að pizzabotni með grófu durum hveiti og áleggi sem kemur skemmtilega á óvart.
Pizza sem kemur skemmtilega á óvart (fyrir 4)
Pizzadeig:
- 2,5 dl vatn
- 20 g ger
- 2 tsk. gróft salt
- 200 g gróft durum hveiti
- 150 g ítalskt hveiti Tipo 00 (má líka nota venjulegt hveiti)
Álegg:
- 2 bökunarkartöflur
- Ricotta ostur
- 4 rósmarín greinar
- Flögusalt
- Truffluolía
- Ferskar jurtir að eigin vali.
Aðferð:
- Hellið vatni í skál og leysið gerið upp.
- Bætið salti út í og því næst grófa durum hveitinu, smátt og smátt á meðan hrært er í á meðan.
- Látið hefast á volgum stað í 30 mínútur.
- Skiptið deiginu upp í fjóra jafna bita.
- Skerið kartöflurnar í mjög þunnar skífur, t.d. með mandolin járni.
- Saxið rósmarín.
- Fletjið deigin út. Smyrjið botnana með ricotta og stráið rósmarín yfir.
- Deilið kartöflunum jafnt ofan á botnana og kryddið með salti og pipar.
- Bakið á grillinu þar til kanturinn er orðinn stökkur.
- Dreypið truffluolíu yfir og skreytið með ferskum jurtum að eigin vali.