Orð eru algjörlega óþörf í þetta sinn - enda alveg geggjuð pizza hér á ferð sem þú munt elska. Þessi uppskrift gefur 4 minni pizzur og bragðið mun leiða hugann á lítinn ítalskan veitingastað.
Geggjuð pizza – punktur!
- 2,5 dl vatn
- 20 g ger
- 2 tsk. salt
- 150 g gróft durum hveiti
- 200 g hveiti
Álegg:
- 200 g ricotta
- Flögusalt
- Ólífuolía
- 300 g spínat
- 4 rósmaríngreinar
- Tómatar
- Basilika
- Salt og pipar
Aðferð:
- Hellið vatni í skál og leysið upp gerið. Bætið salti út í og því næst durum hveitinu og hnoðið vel. Látið hefast í 1 tíma.
- Stráið hveiti á borðið og skiptið deiginu upp í fernt. Rúllið út hverjum deigbita fyrir sig.
- Smyrjið botnana með ricotta og kryddið með salti og smá ólífuolíu.
- Dreyfið spínati yfir botnana. Saxið timían og stráið yfir. Bakið í ofni við 250°C í 10 mínútur.
- Skerið tómata í skífur og dreifið yfir pizzuna ásamt basilikum. Kryddið með salti og pipar.