Fullkominn helgarbakstur með krökkunum er hér í allri sinni mynd. Sérstaklega hjá þeim sem ætla sér í berjatínslu í ár og geta því skellt í þessar mjúku skonsur með uppskerunni. Munið bara að hnoða deigið eins lítið og mögulegt er til að það haldist létt og ljúffengt þegar bakað er.
Uppáhalds bláberja skonsurnar
- 2 bollar hveiti
- ⅓ bolli sykur
- 1 msk. lyftiduft
- ½ tsk. salt
- 5 msk. kalt smjör, skorið í litla bita
- ⅔ bolli rjómi
- 1 stórt egg
- 1½ tsk. vanilludropar
- ¾ bolli frosin bláber (ekki láta þau þiðna)
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Blandið saman í skál, hveiti, sykur, lyftidufti og salti. Bætið smjörbitunum út í og hrærið saman – notið jafnvel fingurnar.
- Takið fram litla skál og pískið 2/3 af rjómanum saman við egg og vanilludropa. Hellið blöndunni út í deigið.
- Stráið hveiti á borðið og setjið deigið á borðið. Byrjið að raða bláberjunum á deigið og leggið það svo saman. Bætið þá við berjum og leggið aftur saman – smátt og smátt. Skiptið deiginu í 2 hluta og mótið tvo hringi (sirka 5 cm þykka).
- Skerið hvern hring í 8 hluta og raðið á bökunarpappírinn. Pennslið hverja skonsu með smávegis af rjóma og dreifið sykri yfir.
- Bakið í 11-14 mínútur eða þar til gylltar að lit.
- Berið fram heitar með smjöri, rjómaosti eða bláberjasultu.