Þessar ljúffengu bollur munu gera daginn aðeins betri. Í þessari uppskrift eru bollurnar bornar fram með bragðgóðu kínóasalati og æðislegri jógúrtdressingu sem inniheldur graslauk.
Mánudags fiskibollur með geggjuðu meðlæti
- 200 g þorskur, án skinns og beina
- 200 g lax, án skinns og beina
- 1 tsk. salt
- 1 egg
- 2 msk. hveiti
- Kryddjurt að eigin vali, t.d. basilika
- ½ dl mjólk
- Smjör til steikingar
- 1 sítróna, skorin í báta
Jógúrtdressing:
- 2 dl hrein jógúrt
- 1-2 msk. sætt sinnep
- 25 g graslaukur
- Salt og pipar
Kínóa:
- 100 g kínóa
- 1 hvítkál
- ½ tsk. flögusalt
- ½ tsk. sykur
- 1 gúrka
- 100 g spínat
- 1 myntubúnt
- 1 steinseljubúnt
- ½ dl ólífuolía
Aðferð:
Bollur:
- Hakkið þorskinn og laxinn og setjið í skál með salti og blandið saman.
- Bætið eggi, hveiti og söxuðum jurtum saman við og hellið mjólkinni út í.
- Kryddið með pipar og látið hvíla í 30 mínútur.
- Formið í bollur og steikið upp úr smjöri á pönnu.
Jógúrtdressing:
- Hrærið jógúrt með sinnepi og hökkuðum graslauk. Smakkið til með salti og pipar.
- Berið fiskibollurnar fram með sítrónubátum, kínóasalati og jógúrtdressingu.
Kínóa:
- Skolið og sjóðið kínóa samkvæmt leiðbeiningum. Kælið.
- Fjarlægið ystu blöðin á kálinu og skerið smátt. Saltið og piprið. Skerið gúrkuna í teninga.
- Blandið saman kínóa, káli, gúrku og spínati.
- Saxið jurtirnar og blandið saman við salatið ásamt ólífuolíu.