Nýbakaðar súkkulaðiskonsur

Girnilegar þessar súkkulaðiskonsur.
Girnilegar þessar súkkulaðiskonsur. mbl.is/Frederikkewærens.dk

Nýbakað er alltaf best! Nýbakaðar súkkulaðiskonsur voru að koma úr ofninum og ilmurinn er ómótstæðilegur.

Nýbakaðar súkkulaðiskonsur

  • 225 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 msk. sykur
  • ¼ tsk. salt
  • 65 g smjör
  • 1 dl súrmjólk
  • 1 dl rjómi
  • 130 g dökkt súkkulaði, saxað
  • 1 egg til penslunar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 225°C á blæstri.
  2. Blandið hveiti, lyftidufti, sykri og salti saman í skál.
  3. Skerið smjörið í teninga (ekki of smátt) og blandið í skálina með höndunum.
  4. Bætið súrmjólkinni saman við ásamt rjómanum og blandið saman.
  5. Setjið súkkulaðið út í en ekki hnoða of mikið. Setjið deigið á borð með smá hveiti undir og fletjið út í ferning, sirka 2 cm þykkt.
  6. Skerið 10 jafnstórar skonsur út og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  7. Penslið með pískuðu eggi og bakið í 16-18 mínútur.
  8. Berið fram volgar.
mbl.is/Frederikkewærens.dk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert