Nú förum við fljótlega að færa okkur úr grilluðum bökunarkartöflum eftir gott sumar og yfir í kartöflugratín sem þetta. Hér eru þunnar kartöflusífur gratíneraðar í rjóma, osti og beikoni ásamt grófsöxuðum hnetum. Gerist varla betra en þetta.
Geggjað kartöflugratín með beikoni
- 1,5 kg kartöflur
- 200 g beikon
- 50 g heslihnetur
- 2 stór hvítlauksrif
- Ferskt timían
- Salt og pipar
- Nýrifið múskat
- 4 egg
- ½ L mjólk
- ½ L rjómi
- 200 g nýrifinn emmentaler ostur
- 200 g nýrifinn parmesan
- Eldfast mót, 20x30 cm
Aðferð:
- Skrælið eða skrúbbið kartöflurnar og skerið í þunnar skífur. Leggið skífurnar í kalt vatn í 10 mínútur. Látið skífurnar þorna á hreinu viskastykki.
- Skerið beikon niður og steikið á pönnu. Saxið hneturnar gróflega. Saxið hvítlauk og timían smátt.
- Veltið kartöfluskífunum upp úr hvítlauk, beikoni, hnetum, timían nýrifnum múskat og salti og pipar.
- Hitið ofninn á 190°C.
- Pískið egg saman við mjólk og rjóma.
- Dreifið helmingnum af kartöflunum í smurt eldfast mót og dreyfið nýrifnum emmentaler yfir. Leggið restina af kartöflunum yfir og hellið eggjablöndunni yfir. Stráið nýrifnum parmesan yfir.
- Bakið í ofni í 45 mínútur þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Setjið jafnvel álpappír síðustu 10 mínúturnar ef þær verða of dökkar.