Við elskum óvæntar uppákomur og það er nákvæmlega það sem gerist hér í þessari uppskrift. Grillað focaccia brauð með ferskjum og rósmarín var ekki það sem við héldum að myndi stela senunni í dag.
Focaccia með óvæntri fyllingu
- 20 g ger
- 2,5 dl volgt vatn
- 1 tsk salt
- 100 g manitoba hveiti (eða annað gróft hveiti)
- 275 g tipo 00 hveiti (eða annað gott hveiti)
- 2 ferskjur
- 1 mozzarellakúla
- Ferskt rósmarín
- Flögusalt
- Ólífuolía
Aðferð:
- Hrærið gerið út í volgt vatn og bætið við salti og manitoba hveitinu. Setjið hveitið út í smátt og smátt og hnoðið varlega saman þar til það verður slétt og fínt. Látið hefast í skálinni í 1 tíma.
- Hnoðið aðeins aftur í deiginu og fletjið það svo út þannig að það sé jafn þykkt allsstaðar.
- Stráið hveiti á bökunarplötu eða bökunarstein (bökunarpappír mun brenna).
- Skerið ferskjurnar í báta og ýtið þeim ofan í deigið með höndunum. Rífið mozzarella kúluna niður og dreifið yfir deigið. Stráið rósmarín og salti yfir og dreypið ólífuolíu yfir allt. Látið hefast í 30 mínútur.
- Setjið bökunarsteininn á rist inn í ofn eða á grillið – sirka 225°C.
- Bakið í 15-20 mínútur.