Fisk má reiða fram á ýmsa vegu – ekki bara með einni rúgbrauðssneið á kantinum og remúlaði. Hér er einn geggjuð uppskrift að rauðsprettu borin fram með stökku salati.
Geggjuð rauðspretta með stökku salati
- 4 rauðsprettuflök
- 1 msk. hveiti
- 1 egg
- 2 dl rasp
- Smjör til steikingar
- Salt og pipar
Salat:
- 1 gulrót
- 100 g kúrbítur
- 100 fennel
- 1 dl Ravigote sósa
- 2 msk fíntsaxað dill
Annað:
- Karse
- Ferskt dill
- Gott brauð
Aðferð:
- Veltið fisknum upp úr hveiti og saltið og piprið. Veltið því næst upp úr pískuðu eggi og því næst raspi. Steikið fiskinn á pönnu upp úr smjöri í tvær mínútur á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar.
- Skerið gulrótina og skerið í þunna strimla. Skerið kúrbítinn og fennel í þunnar skífur. Veltið gulrótum, kúrbít og fennel saman við Ravigote sósuna og dillið.
- Berið fram með brauði og stökku salati - og skreytið með karse og fullt af dilli.