Það krefst ekki mikillar fyrirhafnar að elda nýjan fisk og því upplagt að græja það á annasömum dögum. Þessi uppskrift er einmitt þannig – fljótleg og góð. Hér bjóðum við upp á bakaðan þorsk, vafinn inn í parmaskinku með kúrbít og tómötum.
Ferskur og fljótlegur fiskréttur
- 600 g þorskur
- 4 sneiðar af parmaskinku
- 400 g kúrbítur
- 300 g litlir tómatar (blandaðir litir)
- 1 rauðlaukur
- 2 msk. ólífuolía
- 1 tsk. þurrkað timían
- 1 tsk. þurrkað oregano
- Salt og pipar
- 1 dl grænmetiskraftur
Annað:
- 400 g ferskt pasta
- Steinselja
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C.
- Skerið kúrbítinn í þykkar sneiðar og í fjóra hluta. Skerið tómata og lauk í báta. Veltið grænmetinu upp úr olíu og kryddið með timían, oregano, salti og pipar. Setjið í eldfast mót og hellið grænmetiskraftinum í botninn á fatinu. Setjið inn í ofn í 10 mínútur.
- Skiptið þorskinum upp í fjóra bita og kryddið með salti og pipar. Vefjið einni skinkusneið utan um hvert stykki.
- Takið fatið úr ofninum og raðið fiskinum ofan á grænmetið og setjið aftur inn í ofn í 15 mínútur. Eða þar til skinkan er orðin stökk og fiskurinn tilbúinn.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
- Saxið steinselju og stráið yfir fiskréttinn og berið fram með fersku pasta.