Hola genial verdad! Eða halló frábæri réttur - sem tekur okkur með sér alla leið til Mexíkó. Þessi er alveg sá allra besti sem hugsast getur ef maginn kallar á ekta mexíkóska veislu.
Ekta mexíkósk veisla upp á tíu
Maís-salat:
- 4 maísstönglar
- 1 jicama, skrældur og skorinn í litla bita
- ½ bolli kóríander, söxuð
- 1/3 bolli vorlaukur
- ¼ bolli mulinn cotija-ostur
- Salt og pipar
- ¼ tsk. chilikrydd
- 1/8 tsk reykt papríka
- 1 lime, safinn og börkurinn rifinn
- Litlar tortillakökur
Hvítlauks-lime dressing:
- ½ bolli majónes
- 2 hvítlauksrif, marin
- 1 lime, safinn
Aðferð:
- Hitið grillið á meðal hita. Penslið maísstönglana með ólífuolíu og saltið og piprið. Leggið á grillið og brúnið í 8-10 mínútur, munið að snúa á milli. Látið kólna aðeins.
- Skerið kornin af stönglunum og setjið í stóra skál ásamt jicama, kóríander, vorlauk, cotija ostinum, chili kryddi, papríkukryddi, salti og pipar. Blandið saman og bætið rifnum lime berki og safa saman við.
- Dressing: Blandið öllum hráefnum saman.
- Setjið dressingu ofan á hverja tortilla og leggið nokkrar skeiðar af maíssalatinu yfir. Bætið við meiri dressingu ef vill og toppið með cotija osti og kóríander.