Ein alveg frábær baka hér á ferð með grænmetisfyllingu og toppuð með geitaosti undir lokin. Þær gerast ekki mikið betri en þessi.
Gómsæt grænmetisbaka með geitaosti
Deig:
- 100 g kalt smjör
- 200 g hveiti
- 1 egg
- 1 tsk. salt
- 1 msk. hörfræ
Fylling:
- 10 grænir aspas
- 4 litlar gulrætur
- 100 g fennel
- 100 g brokkolí
- 1 rauðlaukur
- 2 msk. ólífuolía
- Salt og pipar
- Oregano
Annað:
- 100 g geitaostur
- Púrrlaukur
Aðferð:
Deig:
- Blandið smjöri og hveiti saman í matvinnsluvél þar til það „krumlar“. Bætið eggi, salti og hörfræjum út í og blandið saman.
- Pakkið deiginu inn í plastfilmu og setjið í kæli í 1,5 tíma.
- Hitið ofninn á 200°C. Rúllið deiginu út á hveitilagt borð og leggið því næst deigið í smurt tertuform. Stingið í deigið með gaffli.
- Setjið álpappír meðfram forminu svo það styðji við deigið á meðan það er í ofninum. Bakið í ofni í 10 mínútur.
Fylling:
- Brjótið neðsa hlutann af aspasinum og skerið aspasinn ásamt gulrætur langsum.
- Skerið fennelinn í þunnar skífur. Skerið brokkolíið í litla bita. Skerið rauðlaukinn í þunna báta.
- Veltið grænmetinu upp úr olíu og kryddum og dreifið þeim yfir forbakaða botninn. Bakið í ofni í 20 mínútur.
Samsetning:
- Takið bökuna úr ofni og leggið litla geitaostbita yfir. Skreytið með söxuðum púrrlauk og berið fram strax.