Flatbrauð eru auðveld í framkvæmd og henta bæði sem meðlæti eða sem léttur og þá jafnvel með parmaskinku, nýrifnum parmesan og góðu pestói. Þessi flatbrauð eru hnoðuð í hrærivél en það má alveg hnoða sjálfur á borði. Flatbrauðin haldast safarík og góð ef þú pakkar þeim inn í viskastykki.
Svona bakar þú dásemdar flatbrauð (10 stk)
- 15 g ger
- 2,5 dl vatn
- 1 msk. jógúrt eða sýrður rjómi
- ½ tsk salt
- 1 tsk. sykur
- 450 g hveiti
Aðferð:
- Leysið gerið upp í vatni. Bætið jógúrtinni saman við og hrærið í. Bætið salti og sykri út í og bætið hveitinu saman við smátt og smátt. Hnoðið þar til deigið losnar frá skálinni. Látið hefast í skálinni í 1 tíma undir viskastykki.
- Skiptið deiginu upp í 10 jafn stóra hluta. Rúllið hverri bolli flatt út á hveitilagt borð.
- Hitið pönnu á háan hita. Steikið flatbrauðin, eitt í einu, í sirka 1 mínútu á hvorri hlið. Fylgist vel með brauðinu á pönnunni þar sem það getur auðveldlega brunnið.
- Pakkið brauðinu inn í viskastykki til að þau haldist betur.
mbl.is/frederikkewærens.dk
mbl.is/frederikkewærens.dk
mbl.is/frederikkewærens.dk