Kjúklingasúpur eru ómissandi á matarborðið einu sinni yfir vikuna. Þessi hér er á ítalska vísu með kjúkling og grænmeti sem yljar kroppinn þegar lægðin gengur yfir landið.
Kjúklingasúpa á ítalska vísu (fyrir 4)
- 500 g kjúklingabringur frá Ali
- 2 stór hvítlauksrif
- 2 blaðlaukar
- 1 msk. ólífuolía
- sellerírót
- 3 stórar gulrætur
- 1,5 L grænmetiskraftur
- 200 g makkarónur
- 2,5 dl rjómi
- 500 g ferskt spínat
- 300 g frosnar baunir
- 1 sítróna
- salt og pipar
- handfylli fersk steinselja
Aðferð:
- Pressið hvítlaukinn og skerið blaðlaukinn í þunnar skífur. Steikið laukana upp úr ólífuolíu í stórum potti.
- Hreinsið og skerið sellerírótina í teninga. Skrælið gulræturnar og skerið í skífur. Steikið hvoru tveggja í pottinum í nokkrar mínútur.
- Bætið við grænmetiskrafti og setjið kjúklinginn út í pottinn - látið súpuna sjóða í 20 mínútur þar til grænmetið er orðið mjúkt og kjúklingurinn gegnumsteiktur.
- Takið kjúklinginn upp úr pottinum og rífið hann með tveimur göfflum.
- Setjið makkarónurnar í pottinn og látið sjóða þar til al dente.
- Bætið þá kjúklingnum aftur út í ásamt spínati og frosnum baunum. Hrærið í þar til spínatið hefur fallið saman.
- Smakkið til með nýpressuðum sítrónusafa, salti og pipar.
- Berið fram með saxaðri steinselju.