Þessi blanda er ein sú besta sem við höfum smakkað í lengri tíma. Kókos, bananar og bláber eru það besta sem þú getur fóðrað magann með að morgni eða borið fram sem bröns.
Morgunbrauð með kókoskremi og ávöxtum
- 2 súrdeigsbrauðsneiðar
- ½ dós kókosmjólk (feiti hlutinn sem liggur efst á toppnum)
- ½ plóma
- ½ banani
- handfylli bláber
- handfylli granóla
Aðferð:
- Setjið kókosmjólkina í kæli kvöldið áður en þið notið hana til að fitan skilji sig frá mjólkinni.
- Opnið dósina og skafið kremaða hlutann frá og smyrjið á brauðsneiðarnar.
- Skerið plómu og banana í skífur og leggið á brauðið.
- Raðið bláberjunum á brauðið og dreifið granóla yfir.