Hér er einn af þessum réttum sem við höfum eflaust margoft gert en eru alltaf jafn vinsælir, þá sérstaklega fyrir hversu auðveldir þeir eru í framreiðslu og ekkert vesen. Tómatarnir eru pönnusteiktir ásamt vorlauk og pastanu blandað saman við með ferskum basilikublöðum.
Pönnusteiktir tómatar með pasta
- 400 g pennepasta
- 250 g litlir tómatar
- vorlaukur
- 5 msk. ólífuolía
- basilíka
- 200 g mozzarellakúla
- salt og pipar
Aðferð:
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
- Skerið vorlaukinn smátt og skolið tómatana.
- Hitið 1 msk. af ólífuolíu á pönnu og steikið lauk og tómata í 5-6 mínútur.
- Setjið tilbúna pastað á pönnuna og veltið upp úr lauk og tómötum ásamt basilíku.
- Setjið í skál og leggið mozzarellakúluna í miðjuna. Dreypið ólífuolíu yfir og kryddið með salti og pipar.