Þeir sem vita eitthvað um körfubolta og mexíkóska matargerð ættu að vera meðvitaðir um ást LeBrons James á takó.
Svo mikil er þessi ást að hann hefur sótt um einkaleyfi á orðasambandinu og hyggst markaðssetja vörur undir nafninu enda hefur verið haft eftir honum að takó sé lífsstíll – hvað svo sem það þýðir.
Þess ber þó að geta að skyndibitakeðjan Taco John á téð einkaleyfi og hefur farið þess á leit við James að hann hætti öllum sínum takótilburðum í hvelli.
Hvernig þetta mál þróast verður að koma í ljós en ljóst er að James mun finna takóástríðu sinni farveg með einhverjum hætti.