Hvern hefði grunað að við ættum eftir að bjóða upp á túnfisksamloku með sultuðum rauðlauk og avókadó. Lætur kannski furðulega í eyrum sumra en smakkast lygilega vel.
Það er gaman að koma bragðlaukunum á óvart og hver veit nema það verði nýja uppáhalds „blandan okkar“. Hér er salatið borið fram á rúgbrauðssneiðum og hentar því vel sem léttur kvöldmatur.
Túnfisksamlokan sem þú hefur aldrei smakkað
- 2 túnfiskdósir í olíu
- 200 g edemame-baunir án belgs, frosnar
- 1 lítill rauðlaukur
- 4 msk. Hellmanns-majónes
- 4 msk. grísk jógúrt frá Örnu
- salt og pipar
- ½ sítróna
Sultaður rauðlaukur:
- 1 rauðlaukur
- 1 dl eplaedik
Annað:
- 8 rúgbrauðsskífur
- 2 þroskuð avókadó
- 125 g blandað salat
Aðferð:
- Setjið túnfiskinn í skál.
- Hellið sjóðandi vatni yfir baunirnar þar til þiðnaðar og hellið svo vatninu frá.
- Saxið laukinn smátt. Hrærið túnfiskinn saman við baunirnar, smátt saxaðan rauðlauk, majónes, gríska jógúrt og salt og pipar. Smakkið til með sítrónusafa.
- Ristið rúgbrauðið og skerið avókadó í skífur.
- Setjið grænt salat á brauðið, túnfisksalat og avókadó. Skreytið með sultuðum rauðlauk og kryddið með salti og pipar.
- Sultaður rauðlaukur: Skerið rauðlaukinn í mjög þunnar sneiðar. Hitið eplaedik í potti að suðu. Setjið rauðlaukinn í krukku og hellið edikinu yfir. Látið kólna þar til borið fram.