Neonlitaði svaladrykkurinn Aperol Spritz hefur verið einn sá vinsælasti á börum borgarinnar til þessa. Hér er honum komið fyrir í krúttlegum mini-bollakökum skreyttum smjörkremi og appelsínubita. Uppskriftin er frá matarbloggaranum Frk. Fryd sem gjarnan fer ótroðnar slóðir í matargerð.
Bjútíbollakökur með Aperol Spritz
- 130 g hveiti
- 140 g sykur
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. vanillusykur
- salt á hnífsoddi
- 40 g bráðið smjör
- 1 dl prosecco
- 1 egg
Krem:
- 75 g mjúkt smjör
- 325 g flórsykur
- 1 tsk vanillusykur
- 3 msk. Aperol
- 1 msk. appelsínusafi
Aðferð:
- Hrærið þurrefnin saman og bætið því næst eggi og prosecco varlega saman við. Hellið bráðnu smjörinu út í og hrærið vel saman.
- Setjið deigið í mini-bollakökuform og fyllið upp að 2/3. Hér er gott að notast við álform sem halda pappaformunum betur saman.
- Bakið við 170°C á undir- og yfirhita í 12-14 mínútur.
- Látið kólna á rist áður en þið setjið kremið ofan á.
Krem:
- Setjið öll hráefnin í skál og pískið vel saman. Geymið jafnvel smávegis af flórsykrinum til hliðar og bætið frekar meira við ef kremið er of mjúkt.
- Þegar kremið fellur ekki saman þegar þú lyftir þeytaranum upp er það tilbúið.
- Setjið í sprautupoka og skreytið bollakökurnar. Skreytið með appelsínubút og berið fram.
Aperol Spritz bollakökur!
mbl.is/Frøken Fryd
Það er Frøken Fryd sem töfraði fram þessa uppskrift. Við mælum með að kíkja inn á Instagram síðuna hennar.
mbl.is/Frøken Fryd