Hér er einn af þessum réttum sem eiga að vera á boðstólum í hverri viku – réttur sem öll fjölskyldan elskar. Kjúklingur í karríi er í þessu tilviki borinn fram með gulrótum og eplum sem gefa sætuna á móti þessu sterka. Hér má vel sleppa chili-inu ef það þykir of sterkt fyrir börnin.
Uppáhald fjölskyldunnar – kjúklingur í karríi
- 500 g kjúklingabringur
- 2 msk. karrí
- 2 tsk. túrmerik
- 1 tsk. kóríander
- ½ tsk. chiliflögur
- 2 msk. kókos- eða ólífuolía
- 2 gulrætur
- 1 epli
- 2 dósir kókosmjólk
- salt og pipar
Annað:
- Hrísgrjón
- epli
- ristaðar kókosflögur
- ferskt kóríander
Aðferð:
- Sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum.
- Skerið kjúklinginn í litla bita. Steikið allt kryddið upp úr olíu í potti og bætið síðan kjúklingnum saman við. Látið brúnast á öllum hliðum.
- Skerið gulrætur og epli í litla bita, bætið út í pottinn og steikið áfram í 5 mínútur. Hellið þá kókosmjólkinni yfir og látið malla í 10 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
- Berið réttinn fram með hrísgrjónum, eplabitum, kókosflögum og fersku kóríander.