Þegar veðrið er ekki upp á marga fiska er gott að ylja sér yfir kjúklingarétti sem gleður bragðlaukana. Hér er tai-kjúlli í sinni bestu útgáfu með stökkum kasjúhnetum. Gjörið svo vel!
Besti tai-kjúllinn með kasjúhnetum
- 2 litlir laukar
- 2 vorlaukar
- 400 g kjúklingabringur frá Ali
- 3 msk. sólblómaolía
- 80 g kasjúhnetur
- 3 stór hvítlauksrif
- 2 msk. þurrkaðar chiliflögur
- hrísgrjón (ef vill)
Sósa:
- 2 tsk. sojasósa
- 2 msk. teriyaki sósa
- 2 msk. fiskisósa
- 2 msk. púðursykur
- 2 msk. vatn
Aðferð:
- Skerið laukana gróflega.
- Skerið kjúklinginn í þunnar langar skífur. Ristið kasjúhneturnar upp úr olíu á pönnu, annaðhvort wok-pönnu eða stórri pönnu. Takið hneturnar upp með töng og leggið þær á pappír og leyfið olíunni að leka af. Leyfið olíunni að liggja áfram á pönnunni.
- Steikið laukana upp úr olíunni og pressið hvítlaukinn út á pönnuna ásamt chiliflögunum – veltið saman í sirka 2 mínútur þar til það byrjar að ilma af chili.
- Bætið kjúklingnum út á pönnuna og steikið áfram í 4-5 mínútur þar til kjötið er gegnumsteikt. Bætið þá kasjúhnetunum saman við ásamt sósunni. Því næst kemur vorlaukurinn og pannan er tekin af hitanum.
- Sósa: Hrærið öllum hráefnunum saman í skál og látið standa í smá stund.
- Berið réttinn fram með steiktum hrísgrjónum eða núðlum.