Það fer ekkert á milli mála að við erum dottin inn í árstíðarskipti. Þá færum við okkur frá útigrillinu og yfir í pottana í eldhúsinu. Súpur eru það allra besta þegar haustlægðin liggur yfir landinu – ein sem yljar manni um kroppinn á meðan við heyrum í rigningunni berja á gluggana. Þessi súpa er með núðlum og portobello-sveppum en það má vel bæta kjúklingi saman við til að hún verði matarmeiri.
Súpan sem bjargar okkur í haustlægðinni (fyrir 2)
- 1 msk. engifer, smátt saxað
- 2 stór hvítlauksrif, marin
- 2 tsk. sítrónugras, smátt saxað
- 1 msk. rautt karrí (eða eftir smekk)
- ólífuolía
- 8-10 dl grænmetiskraftur eða vatn
- 2 msk. fiskisósa
- safi úr ½ lime
- 2 tsk. sykur
Fylling:
- 3 portobello-sveppir í skífum
- 100 g grænar baunir
- ólífuolía
- salt
- núðlur
- ½ búnt vorlaukur
- handfylli fersk mynta
Aðferð:
- Steikið engifer, hvítlauk, sítrónugras og rautt karrí upp úr smávegis af olíu í potti, samt ekki þannig að hráefnin taki lit. Setjið kraftinn eða vatnið út í og látið suðuna koma upp. Smakkið til með fiskisósu, lime og sykri – látið malla í 5-10 mínútur.
- Steikið sveppina upp úr olíu á heitri pönnu. Gufusjóðið baunirnar í nokkrar mínútur upp úr saltvatni.
- Sjóðið núðlurnar og setjið í tvær stórar skálar ásamt sveppum, baunum, vorlauk og myntu. Hellið heitri súpunni yfir og berið strax fram.