Það er nauðsynlegt að eiga eina svona uppskrift uppi í erminni – eina lauflétta uppskrift sem þú gerir nánast blindandi því svo auðveld er hún í framkvæmd. Súkkulaðibitakökur eru alltaf vinsælar sama hvernig viðrar.
Súkkulaðibitakökur sem þú gerir blindandi
- 145 g mjúkt smjör
- 110 g púðursykur
- 110 g sykur
- 1 egg
- 210 g hveiti
- 1 tsk. vanillusykur
- 1 tsk. lyftiduft
- 100 g hnetur eða möndlur
- 70 g mjólkursúkkulaði
- 70 g dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Hitið ofninn á 175°C á blæstri.
- Pískið smjör, púðursykur, sykur og egg saman. Bætið hveiti því næst saman við ásamt vanillusykri og lyftidufti og pískið vel saman.
- Saxið hneturnar. Saxið súkkulaðið gróft. Blandið hnetum og súkkulaði saman við blönduna.
- Formið í litlar kúlur og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu. Passið að það sé pláss á milli kúlanna og þrýstið jafnvel létt ofan á hverja og eina þannig þær fletjist auðveldar út.
- Bakið í ofni í 11-15 mínútur þar til þær eru létt gylltar á lit og látið kólna á rist.
- Kökurnar eru mjúkar þegar þú tekur þær úr ofninum en þegar þær kólna verða þær stökkar á köntunum og hæfilega mjúkar í miðjunni.