Þessi æðislega baka mun fljótt komast á matarplanið og verða vikulega á dagskrá hér eftir. Rjómakennd baka með fetaosti, spínati, ricotta og fersku chili er eitthvað sem við sláum ekki hendinni á móti. Hér er venjulegum tertubotni skipt út fyrir þunnar kartöfluskífur sem gera bökuna enn safaríkari og hollari.
Yndisaukandi spínatbaka með feta (fyrir 4)
- 3 stórar bökunarkartöflur (ca. 600 g)
- 2 msk. ólífuolía
- smelluform, 24 cm
- smjör til að smyrja formið
Fylling:
- 1 stórt hvítlauksrif
- 1 rautt chili
- 350 g ferskt spínat
- 1 msk. ólífuolía
- 2 egg
- 100 g ricotta
- 100 g fetaostur
- ½ búnt steinselja
- rifinn börkur af ½ sítrónu
- ½ tsk. múskat
- salt og pipar
Aðferð:
- Skrælið kartöflurnar og skerið tvær af þeim í mjög þunnar skífur, jafnvel með mandolín járni. Skerið þriðju kartöfluna í þunnar skífur á lengdina.
- Steikið kartöfluskífurnar á báðum hliðum upp úr olíu á pönnu þar til ljósbrúnar. Leggið á eldhúspappír og látið olíuna leka af.
- Smyrjið smelluformið með smjöri og líka kantana. Dekkið botninn á forminu með kringlóttum kartöfluskífum og leggið löngu kartöfluskífurnar upp hliðarnar á forminu. Skífurnar mega alveg fara hver yfir aðra.
- Hitið ofninn á 185°C.
- Saxið hvítlaukinn og chili smátt. Skolið spínatið og hitið í potti upp úr olíu ásamt chili og hvítlauk í 3 mínútur. Kælið örlítið.
- Pískið egg og ricotta saman í skál og bætið fetaosti út í. Saxið steinseljuna og bætið út í eggjablönduna ásamt sítrónuberkinum og múskatinu.
- Saxið spínatið og setjið útí eggjablönduna. Kryddið með salti og pipar. Hellið í bökunarformið og bakið í ofni í 40 mínútur þar til blandan er föst í sér.