Það er mögulega ekki á hverjum degi sem Sigrún Sveins býður í hádegisverð en Albert Eiríks var svo heppinn að vera boðinn. Ekki nóg með það heldur nældi hann í uppskrift að gúllassúpunni sem sögð er stórbrotin í alla staði og við þökkum þeim Alberti og Sigrúnu kærlega fyrir.
Matarbloggið hans Alberts er hægt að nálgast HÉR
Himnesk gúllassúpa með ítölsku ívafi
- 1,6 kg smátt skorið nautagúllas
- 2 msk. smjör
- 5-6 laukar, skornir í tvennt og svo í sneiðar
- 2 paprikur, skornar í bita
- 3 tsk. paprikuduft
- 3 tsk. hvítlauksduft
- 3 tsk. timían
- 2 dósir niðursoðnir tómatar
- 6 msk. tómatpuré
- 3 msk. hunang
- 2½ l vatn
- 5-6 teningar nautakraftur
- 3 vænar bökunarkartöflur, skornar í teninga
- 2 sætar kartöflur, skornar í teninga
- 4 dl rjómi
- Salt og pipar eftir smekk og ögn af chilidufti
Aðferð:
- Byrjið á að skera gúllasið í litla bita. Þerrið kjötið vel og kryddið með salti og pipar.
- Hitið stóran pott við fremur háan hita og bræðið smjörið. Brúnið kjötið án þess að gegnsteikja það og setjið svo til hliðar.
- Lækkið hitann og steikið laukinn í 10-15 mínútur þannig að hann mýkist og breyti um lit. Paprikan steikt með. Bætið kjötinu aftur út í ásamt kryddinu og steikið aðeins áfram.
- Setjið tómatpuré saman við ásamt krafti, tómötum, hunangi og vatni og hleypið suðunni upp. Flysjið kartöflurnar á meðan suðan er að koma upp og bætið þeim svo út í. Látið súpuna sjóða í 30 mínútur. Lækkið þá hitann, bætið rjómanum út í og smakkið til með salti og pipar.
- Látið súpuna malla við vægan hita undir loki í 2-4 tíma. Því lengur því betra. Berið fram með brauði, sýrðum rjóma og steinselju.
Ofan á ef vill: Ferskt kóriander og sýrður rjómi – borið fram með snittubrauði og smjöri. Uppskriftin er fyrir 6-8 manns.