Þessi svalandi drykkur er það sem þú vilt skála í um helgina. Hér er fíkja sem leikur stórt hlutverk í klassískum kokteil sem mun fá bragðlaukana til að dansa. Sæta bragðið í fíkjunni er fullkomið á móti fersku myntunni. Þessi verður að smakkast!
Helgarkokteillinn er bomba!
- 4 cl ljóst romm
- 1 tsk. hrásykur
- ½ lime, skorið í báta
- Myntublöð
- ½ fíkja, skorin í báta
- Mulinn ís
- Sódavatn
Aðferð:
- Settu sykurinn, myntublöðin, lime og fíkju í kokteilglas og byrjaðu að mylja með mortéli.
- Settu romm út í glasið og hrærðu vel í.
- Fylltu glasið ¾ með muldum ís.
- Fyllið með sódavatni og hrærið í.
- Skreytið með fíkjubátum og myntublöðum.
Hér er fíkja að spila aðalhlutverkið í kokteil helgarinnar.
mbl.is/Colourbox
Hefur þú smakkað fíkjur út í mojito?
mbl.is/cookienameddesire.com