Það er alltaf gott að eiga bollur í frysti til að taka út þegar þörf er á. En bollur smakkast þó alltaf best nýbakaðar þegar smjörið og osturinn bráðnar hálpartinn er við smyrjum þær. Þessi uppskrift er í hollari kantinum og inniheldur kúrbít, steinselju og heilhveiti.
Besta brauðbollu uppskriftin (12-14 stk)
- 200 g hveiti
- 75 g heilhveiti
- ½ tsk. salt
- 1 msk. lyftiduft
- Fersk steinselja
- 150 g rifinn kúrbítur
- 25 g sólblómafræjum
- 75 g rifinn mozzarella
- 50 g smjör
- 1,5 dl súrmjólk
Aðferð:
- Blandð saman hveiti, heilhveiti, salti og lyftidufti.
- Bætið steinselju, kúrbít, sólblómafræjum og mozzarella saman við.
- Smuldrið smjörinu út í deigið og blandið því saman við súrmjólkina.
- Setjið deigið á hveitilagt borð og fletjið það út sirka 2 cm á þykktina.
- Notið hringlaga form og skerið út sirka 5 cm bollur og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Penslið með súrmjólk og bakið í 12 mínútur við 210°C.
- Berið fram volgar.