Hvernig er best að útskýra salat sem þetta nema með einu orði – stórkostlegt! Því hér um ræðir rétt sem gæti verið á matseðli einhverra veitingahúsa en er sáreinfaldur og hægt að matreiða í eldhúsinu heima.
Ferskt kjúklingasalat með grjónum
- 2 kjúklingabringur frá Ali
- 3 dl kraftur
- 1 brokkolí
- ½ iceberg salat
- 4 gulrætur
- 2 maíisstönglar
- 200 g soðin hrísgrjón
Karrýdressing:
- 2 dl hrein jógúrt
- 2 msk ólífuolía
- 2 tsk karrý
- 1 stórt hvítlauksrif
- Salt og pipar
Aðferð:
- Setjið kjúklinginn og kraftinn í pott og sjóðið í 15 mínútur. Hellið vatninu af og rífið kjúklinginn í sundur með gaffli.
- Skerið brokkolí í litla bita og gufusjóðið í nokkrar mínútur.
- Skerið salatið niður og skerið gúrkuna í teninga. Skrælið gulræturnar og rífið þær fínt niður með járni sem gefur langar ræmur. Skerið maíisinn af stönglunum.
- Hrærið öll hráefnin saman í dressinguna og smakkið til með salti og pipar.
- Veltið soðnum hrísgrjónum saman við grænmetið og kjúklinginn og berið fram með dressinguna til hliðar.