Brokkolí er eitt af því besta sem við getum í okkur látið og hér er það mætt gratínerað á borðið. Við getum alltaf á okkur brokkolí bætt og sérstaklega í þessari útgáfu.
Geggjað gratinerað brokkolí
- 400 g brokkolí
- 50 g möndlur
- 30 g smjör
- 125 g hveiti
- 3,5 dl mjólk
- 4 egg
- 1 tsk. salt
- Pipar
Aðferð:
- Skerið brokkolíið í minni bita, og skerið einnig stöngulinn í teninga. Sjóðið í 3-4 mínútur í saltvatni og leyfið því næst vatninu að leka af.
- Bræðið smjörið í potti saman við mjólkina og því næst kemur hveitið út í. Hrærið saman í 1-2 mínútur. Látið kólna örlítið áður en eggjarauðurnar fara út í.
- Pískið eggjahvíturnar og blandið þeim saman við brokkolí og saxaðar möndlur. Kryddið með salti og pipar.
- Smyrjið 4 eldföst mót (lítil) – eða eitt stórt. Setjið gratínblönduna út í og bakið í ofni í 30-35 mínútur við 175°C. Athugið: ef þú gratínerar í einu stóru formi, þá skaltu hafa réttinn í sirka 45-50 mínútur inn í ofni.